Ungir Frumkvöðlar á Íslandi voru stofnaðir árið 2002 með þátttöku fjögurra stofnaðila; Gunnars Jónatanssonar, VR, P. Samúelssonar og Sjóvár. Gunnar kynntist starfi samtakana um aldamótin 2000 og leitaði í kjölfarið til fyrirtækja og einstaklinga til að leggja hugmyndinni lið. Við erum frjáls félagasamtök, rekin án hagnaðarsjónarmiða og tilheyrum alþjóðlegum samtökum sem heita Junior Achievement (JA).

JA eru alþjóðleg, frjáls félagasamtök sem starfa í 123 löndum. Um 10.5 milljón nemenda taka þátt í verkefnum á vegum samtakanna víðs vegar um heiminn. Markmið JA er að undirbúa ungt fólk fyrir framtíðina og auka færni þeirra til atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar með því að stuðla að aukinni nýsköpunar-, frumkvöðla- og viðskiptamennt í skólum.

JA – fyrirtækjasmiðjan hefur hlotið viðurkenningu frá  framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem “Best Practice in Entrepreneurship Education”. 

Reiknað er með að um 600 nemendur í 13 framhaldsskólum taki þátt í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla 2019.

Stjórn JA á Íslandi skipa stjórnendur frá: Samtök atvinnulífsins, Landsvirkjun, Arion banki, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Sjávarklasinn og Háskólinn í Reykjavík

Petra Bragadóttir er framkvæmdastjóri JA á Íslandi.

JA worldwide: jaworldwide.org

JA í Evrópu: jaeurope.org

Stjórn Ungra frumkvöðla 2020 –  ásamt stuðningsaðilum  

Davíð Þorláksson forstöðumaður Samkeppnishæfnisviðs SA, stjórnarformaður, hann tekur við af Herði Arnarsyni sem hefur verið stjórnarformaður Ungra frumkvöðla s.l. 4 ár, Benedikt Gíslason forstjóri Arion banka, Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunar, Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarmaður Lilju Daggar Alfreðsdóttur, Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Þór Sigfússon, forstjóri Sjávarklasans, Ari Kristinn Jónsson, Rektor HR og Sigríður Ingvarsdóttir forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Aðrir á myndinni eru: Guðfinna Helgadóttir, sérfræðingur í viðskiptaþróun Arion banka, Karl Friðriksson, forstöðumaður Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Eyjólfur B. Eyjólfsson, verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Petra Bragadóttir framkvæmdastjóri Ungra frumkvöðla – JA Iceland

Stjórn Ungra frumkvöðla 2018 – 19 ásamt stuðningsaðilum og mennta- og menningarmálaráðherra

Aftari röð frá vinstri: Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, Karl Friðriksson, forstöðumaður á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ari Kr. Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, Þór Sigfússon, forstjóri Sjávarklasans, Davíð Þorláksson, forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins

Fremri röð frá vinstri: Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, Kristín Lúðvíksdóttir verkefnastjóri hjá Samtökum fjármálafyrirtækja, Lilja Alfreðsdóttir, Mennta- og menningarmálaráðherra, Petra Bragadóttir, framkvæmdarstjóri JA á Íslandi og Eyjólfur B. Eyjólfsson, verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands