Margir framhaldsskólar vinna gott og mikilvægt menntastarf á sviði nýsköpunar, hönnunar, tækni, lista, iðnaðar og fleiri tengdra greina. Í lok annar sýna nemendur afrakstur sinn oft í skólum sínum en yfirleitt nær það ekki lengra. Með Samsýningu framhaldsskólanna gefst nú skólum tækifæri á að vinna með öðrum skólum að uppsetningu sameiginlegrar sýningar. Í hugmyndavinnu sinni, hafa nemendur oftar en ekki Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi og er hugað sérstaklega að því að allt framleiðsluferli, frá hugmynd til lokaafurðar taki tillit til sjálfbærni, samfélagslegra áhrifa og/eða umhverfissjónarmiða.
Markmið Samsýningarinnar er m.a. að gefa nemendum tækifæri á að sýna almenningi afrakstur sinn, mynda tengsl við aðra og sýna fram á mikilvægi þess að styðja við og efla menntun á sviði nýsköpunar, hönnunar, lista og verklegra greina í íslensku samfélagi.
Á sýningunni má sjá fjölda fjölbreytilegra hluta og hugmynda. Sumar eru nýsköpun, aðrar falleg hönnun og/eða gott handverk og enn aðrar eru sambland af þessu. Mörg verkanna er einfaldlega lokaafurð nemendanna á brautinni í skólanum en aðrar hugmyndir tengjast frumkvöðlafræðunum og viðskiptahlið hennar.
Samsýningin var haldin í fyrsta sinn í Ráðhúsi Reykjavíkur, í lok haustannar 2018. Þar tóku 112 nemendur, frá 5 framhaldsskólum, þátt. Árið 2025 var sýningin endurvakin og haldin í SÖGU, nýju húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Menntavísindasvið Háskóla Íslands sér um rekstur keppninnar.
Samstarfsaðilar
Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Menntavísindasvið gegnir mikilvægu samfélagslegu hlutverki með menntun leik-, grunn- og framhaldsskólakennara, þroskaþjálfa, tómstundafræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga og uppeldis- og menntunarfræðinga.
Menntavísindasvið, með stuðningi mennta- og menningarmálaráðuneytis og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, er umsjónaraðili Samsýningarinnar.
Hugverkastofan
Hlutverk stofnunarinnar er að fara með málefni varðandi einkaleyfi, vörumerki, hönnunarvernd, byggðarmerki og önnur hliðstæð réttindi. Stofnuninni veitir einstaklingum, stofnunum og atvinnufyrirtækjum upplýsingar og ráðgjöf varðandi hugverkaréttindi í iðnaði. Þá ber stofnuninni að stuðla að því að ný tækni og þekking sem felst í skráðum hugverkaréttindum verði aðgengileg almenningi.







