Skil á myndbandi – Samsýningu framhaldsskólanna 2021

Ekki er gerð krafa um að nemendur sendi inn mynd né myndband en kennari getur þó ákveðið það. Við mælum þó með því að nemendur sendi það inn en hægt er að nota það í tvenns konar tilgangi:

1: Fyrir kynningarstarf á netmiðlum Samsýningarinnar, þar sem almenningur getur skoðað hugmyndina og fengið nánari lýsingu á henni.

2: Fyrir kynningarstarf á netmiðlum nemenda. Hentugt ef ætlunin er t.d. að selja vöruna/þjónustuna, komast í samstarf, fá nánari umfjöllun osfrv.

3: Fyrir dómnefnd. Þannig fær hún betri yfirsýn á hugmyndina en það getur stutt hana í dómnenfndarstörfum sínum.

 Mjög áríðandi að lesa leiðbeiningar fyrir neðan ef myndbandi er skilað inn! Ef vandræði koma upp við skráninguna, vinsamlegast hafið þá samband á ey@hi.is

Fínt er að afrita og líma hér, lýsinguna sem þið senduð ínn fyrir skráninguna

Leiðbeiningar fyrir kynningarmyndband – lesist vel!

Myndbandið má að hámarki vera 120 sekúndur (við mælum þó með 60 – 90 sek.) að lengd en að öðru leiti er myndbandgerðin frjáls. Muna bara að myndir segir meira en 1000 orð.

Hægt er að skila því inn með link, t.d. á Youtube eða á MP4 formatti (Athugið að hámarksstærð myndbands er 20 MB ef MP4 er skilað inn. Engin hámarksstærð er fyrir myndbönd sem eru á Youtube etc.))

Mjög áríðandi ef myndabandinu sjálfu er skilað inn: Vistið myndbandið á mp4 formatti og með nafni hugmyndarinna fremst í heitinu- dæmi: TravelAid_myndband.mp4 eða TravelAid.mp4.  Nota verður það nafn sem notað var í skráningunni sjálfri. Ekki senda inn á nýju nafni, ef það hefur breyst – það verður lagað síðar

Hér er hægt að breyta öðrum formum yfir í mp4: https://cloudconvert.com

Athugið að hámarksstærð myndbands er 20MB. Það þýðir, að ekki gengur að taka upp í HD. Stillið upptöku á 360p – 480p og þá ætti að vera hægt að ná 1  – 2mín myndbandi, undir 20MB(sbr. mynd hér að neðan). Ef myndböndin eru stærri en 20MB, þá er hægt að nota ýmiskonar video compressor forrit, til að minnka stærð myndbanda. Hér eru linkar á svona forrit ásamt ýmsum gagnlegum upplýsingum

Hér er t.d. 2. mín. myndband frá RÚV, sem búið er að þjappa niður í 19MB. Eins og sést eru gæðin enn mjög góð: